Tveir Þingeyingar í U-20 ára landsliðinu í körfubolta

Góður árangur Trygga Snæs Hlinasonar körfuboltamanns úr Bárðardal hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að undanförnu sem á annað borð fylgjast með

Snorri Vignisson. Mynd Bára Dröfn/Karfan.is
Snorri Vignisson. Mynd Bára Dröfn/Karfan.is

Góður árangur Trygga Snæs Hlinasonar körfuboltamanns úr Bárðardal hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að undanförnu sem á annað borð fylgjast með körfubolta. 

Tryggvi er búinn að spila tvö keppnistímabil með Þór á Akureyri og er nýbúinn að skrifa undir samning við besta körfuboltalið Spánar, Valencia og fer þangað í haust.

En Tryggvi er ekki eini Þingeyingurinn sem gerir það gott með U-20 ára landsliði Íslands í körfubolta.

641.is geinir frá því að Snorri Vignisson frá Húsavík (sonur Vignis Siguróla og Margrétar Maríu Sigurðardóttur) er liðsfélagi Tryggva í U-20 ára liði Íslands og fer Snorri með liðinu til Krítar til að taka þátt í A-deild Evrópumótsins í körfubolta í sumar.

Snorri, sem spilar með Breiðablik í næst efstu deild hér heima, tók þátt í æfingamótinu sem nú er nýlokið og skoraði hann 15 stig í leikjunum þremur, gegn Svíþjóð, Ísrael og Finnlandi.

Snorri hefur áður spilað með U-20 ára landsliði Íslands en hann ásamt Tryggva, tóku þátt í  Evrópumóti FIBA í Grikklandi í fyrra, en þar kom lið Íslands verulega á óvart og fór í úrslitaleikinn gegn Svartfjallalandi sem tapaðist naumlega.

A-deild Evrópumótsins í körfubolta fer fram dagana 15-23. júlí á Krít og geta því Þingeyskir körfuboltaáhugamenn fylgst með tveim Þingeyingum á því móti. (641.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744