Tímamótaleikur í blaki í dag

Það verður tímamótablakleikur í íþróttahöllinni á Húsavík í dag kl. 15.00 þegar sameinað karlalið Völsungs og Eflingar mætir KA-Ö í bikarkeppni BLÍ í

Tímamótaleikur í blaki í dag
Íþróttir - - Lestrar 492

Það verður tímamótablakleikur í íþróttahöllinni á Húsavík í dag kl. 15.00 þegar sameinað karlalið Völsungs og Eflingar mætir KA-Ö í bikarkeppni BLÍ í blaki.

Fullgildur blakleikur í karlaflokki hefur ekki farið fram á Húsavík síðan á síðari hluta 20 aldar! 

Eins og sjá má á myndinni er baráttuhugur í Þingeyingunum sem ætla sér stóra hluti í bikarnum og eru harðákveðnir í að senda þá gulkæddu aftur heim með öngulinn í rassinum jafnvel þó að þar á meðal séu auðvitað nokkrir barnfæddir Þingeyingar með Lundarbræður Hjört og Davíð Búa Halldórssyni fremsta í flokki.

Bæði liðin lofa góðri skemmtun og hörkubaráttu um áframhaldandi sæti í Kjörísbikarnum og vonast til að sjá sem flesta á bekkjunum 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744