Þrjár sóttu um stöðu sóknarprests á Húsavík

Biskup Íslands auglýsti fyrir nokkru eftir sóknarpresti til þjónustu í Húsavíkurprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.

Biskup Íslands auglýsti fyrir nokkru eftir sóknarpresti til þjónustu í Húsavíkurprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjar-prófastsdæmi.

Umsóknarfrestur rann út á miðnætti 6. júlí.

Á vef Þjóðkirkjunnar segir að miðað sé við að viðkomandi geti hafið störf 1. september, eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.

Þær sóttu um starfið:

Sr. Erla Björk Jónsdóttir 
Guðrún Eggertsdóttir mag. theol. 
Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir

 

Allar gildar umsóknir fara til þriggja manna matsnefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 5. og 6. gr. „Starfsreglna um val og veitingu prestsembætta...“ Matsnefnd velur að jafnaði fjóra hæfustu umsækjendurna en þó aldrei fleiri en fimm og skilar skýrslu þar að lútandi til biskups.

Kjörnefnd Húsavíkurprestakalls kýs sóknarprest úr hópi umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar, sbr. „Starfsreglur um val og veitingu prestsembætta...“ og biskup ræður svo í starfið.

Prestakallið – og fyrirvari Prestakallið er ein sókn, Húsavíkursókn, sem nær yfir Húsavík, ásamt Tjörnesi og hluta af Reykjahverfi. Í prestakallinu er ein kirkja, Húsavíkurkirkja. Sóknarprestur hefur skrifstofuaðstöðu í Bjarnahúsi, safnaðarheimili kirkjunnar. Prestsetur fylgir ekki prestakallinu. Sóknarprestur annast helgistundir og messur á dvalarheimilinu Hvammi. 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744