Þorkell Lindberg skipaður í embætti for­stjóra Nátt­úru­fræðistofn­un­ar Íslands

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Þorkel Lindberg Þórarinsson í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands til næstu

Þorkell Lindberg Þórarinsson.
Þorkell Lindberg Þórarinsson.

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Þorkel Lindberg Þórarinsson í embætti forstjóra Náttúrufræði-stofnunar Íslands til næstu fimm ára.

Í tilkynningu á vef ráðuneytisins kemur fram að Þorkell er með BS gráðu í líffræði og lauk MS prófi í dýravistfræði frá Háskóla Íslands árið 2002. Hann hefur einnig lagt stund á diplómanám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. 

Þorkell hefur starfað sem forstöðumaður Náttúrustofu Norðausturlands frá árinu 2003. Hann er stjórnarformaður Hvalasafnsins á Húsavík og Rannsóknastöðvarinnar Rifs, ásamt því að gegna formennsku í stjórn Náttúruverndarnefndar Þingeyinga. Þorkell hefur leitt og stýrt fjölda rannsóknaverkefna, sem og verið meðhöfundur fjölda ritrýndra vísindagreina.

Eiginkona Þorkels er Sesselja Guðrún Sigurðardóttir og eiga þau tvær dætur.

Embætti forstöðumanns Náttúrufræðistofnunar var auglýst í september og sóttu 12 um embættið.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744