Þingeyingur októbermánaðar - Bjarni Hafþór Helgason

Þingeyingafélagið hefur valið Bjarna Hafþór Helgason sem Þingeying októbermánaðar.

Bjarni Hafþór Helgason.
Bjarni Hafþór Helgason.

Þingeyingafélagið hefur valið Bjarna Hafþór Helgason sem Þingeying októbermánaðar.

"Ég er fæddur á Húsavík 1957 og alinn þar upp. Faðir minn hét Helgi Bjarnason og var elstur sjö bræðra sem voru Húsvíkingar. Afi og amma voru einnig fædd á Húsavík og hétu Bjarni Ásmundsson, fiskverkandi og Kristjana Hólmfríður Helgadóttir. Framættir þeirra eru í Þingeyjarsýslu og í gegnum afa á ég líka stóran frændgarð í Þorpinu á Akureyri. Móðir mín hét Jóhanna Aðalsteinsdóttir frá Vaðbrekku á Hrafnkelsdal, varð ung starfsstúlka á sjúkrahúsinu á Húsavík og kynntist þá pabba sem leiddi af sér fimm börn sem alin voru upp í Grafarbakka við Ásgarðsveg 15 á Húsavík. 

Ég er algert miðjubarn; á eldri bróður og systur, yngri bróður og systur og systkinin mín eru tvö í blóðflokki A og tvö í blóðflokki B en ég er í hinum sjaldgæfa blóðflokki AB, það er ekki hægt að vera meira í miðjunni. Amma og afi voru fyrst í Hallgrímsbæ á Húsavík en hann stóð rétt norðan og austan við þar sem verslunin Búrfell var síðar, síðan fluttu þau í Valberg sem stendur við Mararbraut 3 niðri á bakkanum, þaðan í gamla Grafarbakka sem hlaut nafn sitt af því að standa á bakka mógrafar sem þarna var, en nýi Grafarbakki var reistur 1948 við hlið þess gamla. Þar ólst ég upp og þar bjuggu einnig amma og afi fyrstu æviár mín.

Á menntaskólaárum mínum á Akureyri vann ég í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur á sumrum en segja má að ég hafi verið fluttur að heiman þegar ég varð stúdent árið 1978, rétt um tvítugt. Fór þá í fjögurra ára viðskiptanám í HÍ og bjó síðan í aldarþriðjung á Akureyri og síðustu fimm ár í Kópavogi. Ég er giftur Ingunni Wernersdóttur og á son, dóttur, stjúpson, tengdadóttur og tengdason. Svo á ég tvo afastráka sem heita Pétur og Helgi og ég er með þeim í Leynifélaginu Meistarinn sem heldur fundi um mál sem hvorki foreldarnir né aðrir fá upplýsingar um. Til dæmis um frostpinna. 

Þegar ég flutti suður fyrir fimm árum bjó ég einn á Akureyri og krakkarnir mínir voru að setjast að fyrir sunnan, þannig að ég ákvað að fylgja með og kynntist um leið Ingunni. Eftir á að hyggja var þetta eins og í stýrðu ferli þar sem á rennur eðlilega að ósi sínum og Ingunn segir að mamma hafi stjórnað þessu öllu að handan, en þær voru góðar vinkonur. Ég sinni fjárfestingum og er minn eigin húsbóndi sem er þó ekki alltaf jafnánægjulegt og það hljómar. En ég er farinn að gefa listsköpun meiri tíma og á síðasta ári kom út heildarsafn tónlistar minnar "Fuglar hugans" sem unnið var í Danmörku og á Íslandi, alls 75 lög með fremstu tónlistarmönnum landsins. 

Og nú var bókaforlagið Veröld að gefa út mína fyrstu bók sem heitir "Tími til að tengja" en hún inniheldur tuttugu smásögur sem eru flestar skrifaðar á síðustu tveimur árum í Kópavogi, London og Davíðshúsi á Akureyri. Ég legg mikið upp úr húmor í þessum skrifum og hann er á mínum forsendum auðvitað, ég er að fá sterk og góð viðbrögð en það er samt ekkert víst að allir hafi sama húmor og ég. En ég vona að mönnum líki skáldskapurinn. Það er mikilvægt að halda í æðruleysið, það hef ég lært eftir 20 ár á vikulegum AA fundum sem nýttist mér vel þegar ég greindist með parkinson í vor, ég hef tekið því með jafnaðargeði og geri allt sem mér er sagt að gagnist og ætla að sigrast á sjúkdómnum þótt hann sé skilgreindur sem ólæknandi taugahrörnunarsjúkdómur. 

Ég er einkennalítill ennþá, með smá skjálfta í hægri hendi og örlítinn stirðleika. Ég allavega tapa ekki á því að halda í húmorinn og eftir að ég greindist tek ég alltaf sérstaklega fram að æskubærinn minn Húsavík standi við Skjálfanda".


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744