Taplausar Völsungsstelpur unnu Sindra 7-0

Meistaraflokkur kvenna tók á móti Sindra frá Hornafirði í rigningunni í gær.

Taplausar Völsungsstelpur unnu Sindra 7-0
Íþróttir - - Lestrar 301

Hafrún Olgeirsdóttir var maður leiksins.
Hafrún Olgeirsdóttir var maður leiksins.

Meistaraflokkur kvenna tók á móti Sindra frá Hornafirði í rigningunni í gær.

Stelpurnar voru mun betri og náðu oft á tíðum flottu spili og sköpuðu sér mörg færi.  

Efnilegur markmaður Sindra kom þó í veg fyrir að sigurinn yrði stærri en í lok leiks höfðu stelpurnar náð að skora sjö mörk.

Markaskorarar voru Hafrún með þrjú, Berglind Ósk með tvö og Katla Ósk og Harpa með sitt hvort markið.

Maður leiksins var Hafrún Olgeirsdóttir og hlaut hún viðurkenningu frá Lyfju.

Óhætt er að segja að Völsungsstelpurnar séu á mikilli siglingu.  Þær hafa nú spilað 6 leiki í Íslandsmótinu og sigrað þá alla.  Þær eru efstar í sínum riðli með 18 stig og hafa skorað 43mörk en aðeins fengið eitt mark á sig.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744