Tćpum fimmtán milljónum úthlutađ til verslunar í strjálbýli

Verslunin Ŕsbyrgi og Skerjakolla á Kópaskeri eru međal verslanna í strjábýli sem fá styrki í ár.

FRá Kópaskeri. Lj. Gaukur,.
FRá Kópaskeri. Lj. Gaukur,.

Verslunin Ŕsbyrgi og Skerjakolla á Kópaskeri eru međal verslanna í strjábýli sem fá styrki í ár.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráđherra hefur stađfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggđaáćtlunar fyrir árin 2018-2024. Ađ ţessu sinni var 14,9 milljónum króna úthlutađ til verslunar í strjálbýli fyrir árin 2019 og 2020 en alls voru gefin fyrirheit um styrki ađ upphćđ 20,6 milljónum króna á árunum 2019-2021. Samningar vegna styrkjanna verđa undirritađir á nćstu dögum.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráđsins segir ađ markmiđiđ međ framlögunum sé ađ styđja verslun í skilgreindu strjálbýli fjarri stórum ţjónustukjörnum, ţar sem verslun hefur átt erfitt uppdráttar. Framlögin eiga ađ bćta rekstur verslana og skjóta frekari stođum undir hann, til dćmis međ samspili viđ ađra ţjónustu, breyttri uppsetningu í verslunum og bćttri ađkomu.

Alls bárust sjö umsóknir og var sótt um samtals kr. 41.549.550.00 fyrir árin 2019-2020. Ţriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerđi tillögur til ráđherra. 

Verkefnin sem hljóta styrk eru:

  • Búđin Borgarfirđi eystri. Gusa ehf. hlýtur styrk ađ heildarupphćđ 5 m.kr. til ţriggja ára eđa 2 m.kr. áriđ 2019, 2,1 m.kr. áriđ 2021 og 900 ţúsund áriđ 2021.
  • Pöntunarţjónusta Hafnartanga, Bakkafirđi. Verkefniđ fćr styrk ađ upphćđ kr. 1,5 m.kr. áriđ 2019.
  • Brekkan Stöđvarfirđi. Ástrós ehf. hlýtur styrk ađ heildarupphćđ 6 m.kr. eđa 2 m.kr. á ári í ţrjú ár 2019-2021. 
  • Skerjakolla ehf. Verslunin hlýtur styrk ađ upphćđ 2,3 m.kr.
  • Verslun á Drangsnesi. Umsćkjandi er óstofnađ félag um rekstur verslunar. Samţykkt hefur veriđ ađ styrkja verkefniđ um 4,8 m.kr. eđa 2 m.kr. áriđ 2020 og 2,8 m.kr. áriđ 2021. Styrkurinn er háđur ţví skilyrđi ađ gögn liggi fyrir eđa samningur og ađ Kaupfélagiđ loki verslun á Drangsnesi.
  • Verslun í Ásbyrgi. Verslunin hlýtur styrk ađ upphćđ 1 m.kr. áriđ 2019.

Í valnefndinni sátu ţau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiđstöđ Íslands, Magnús Karel Hannesson, fv. sviđsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Stefanía Traustadóttir, sérfrćđingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráđuneytinu, sem er formađur nefndarinnar.

Međ valnefnd störfuđu Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfrćđingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráđuneytinu og Sigríđur K. Ţorgrímsdóttir sérfrćđingur hjá Byggđastofnun.

Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samrćmi viđ reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráđherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggđaáćtlunar fyrir árin 2018-2024.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744