Tækifæri hf. eykur hlut sinn í Jarðböðunum

Tækifæri hf. sem er dótturfélag KEA hefur aukið við eignarhlut sinn í Jarðböðunum í Mývatnssveit og er hann nú rúmlega 44% og er Tækifæri stærsti hluthafi

Tækifæri hf. eykur hlut sinn í Jarðböðunum
Almennt - - Lestrar 185

Tækifæri hf. sem er dótturfélag KEA hefur aukið við eignarhlut sinn í Jarðböðunum í Mývatnssveit og er hann nú rúmlega 44% og er Tækifæri stærsti hluthafi félagsins.

Skútustaðahreppur hefur selt allan eignarhlut sinn í fyrirtækinu og neytti Tækifæri forkaupsréttar síns í þeim viðskiptum. 

Rekstur Jarðbaðanna hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum í samræmi við auknar komur erlendra ferðamanna til landsins.

Töluverð uppbygging er framundan hjá Jarðböðunum í nýrri og betri aðstöðu en núverandi húsakostur hefur þjónað sínum tilgangi og afkastar ekki nægjanlega á háannatíma. 

Aðrir helstu eigendur Jarðbaðanna eru Bláa Lónið og Landsvirkjun en samtals eiga 3 stærstu hluthafarnir 88% hlutafjár í dag. (kea.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744