Sverrir Páll Hjaltested kemur á láni til Völsungs

Völsungur styrkti hóp sinn fyrir sumarið í gær þegar Sverrir Páll Hjaltested kom að láni frá Val.

Sverrir Páll Hjaltested kemur á láni til Völsungs
Íþróttir - - Lestrar 470

Sverrir Páll í leik með 2. flokki Vals/HK.
Sverrir Páll í leik með 2. flokki Vals/HK.

Völsungur styrkti hóp sinn fyrir sumarið í gær þegar Sverrir Páll Hjaltested kom að láni frá Val.

Sverrir Páll er sóknarsinnaður miðjumaður, fæddur árið 2000 og uppalinn Víkingur. Hann gekk til liðs við Val í febrúar í fyrra eftir að hafa verið í Noregi um tíma.

Sverrir Páll var lánaður til KH þar sem hann lék tvo leiki en lék síðan með 2. flokki Vals/KH.

Sverrir Páll sagði í stuttu spjalli við 640.is vera spenntur að koma norður og spila með Völsungum. Sverrir Páll er ekki alveg ókunnugur Húsavík verandi barnarbarn Guðnýjar í Garðarshólma og Svavars heitins Cesar. S.s kunnugur staðháttum.

Hann er kominn með leikheimild en Völsungur mætir Fjarðarbyggð nk. laugardag Eskjuvelli á Eskifirði. 

Sverrir Páll var í liði 2. flokks Vals/HK sem kom og lék gegn Völsungum í fyrra og þá voru meðfylgjandi myndir teknar.

Völsungur Valur/HK

Völsungur Valur/HK


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744