26. nóv
Svekkjandi tap í bikarnumÍþróttir - - Lestrar 391
Völsungur tók í gærkveldi á móti Aftureldingu B, sem leikur í 1. deild Íslandsmótsins, í bikarkeppni kvenna í blaki.
Ekki hafði verið leikinn opinber blakleikur á Húsavík í um 20 ár og var því öllu tjaldað til og vel mætt í höllina.
Lið Völsungs byrjaði vel, þær unnu fyrstu tvær hrinur leiksins 25-16 og 25-16.
Lið Aftureldingar kom til baka og vann þriðju hrinu 15-25 og einnig þá fjórðu 23-25.
Oddahrinan var spennandi og endaði með naumum sigri Aftureldingar B 13-15 sem vann þar með leikinn 2-3 og er komið áfram í bikarnum.
Völsungar byrjuðu vel og unnu fyrstu tvær hrinurnar.