SUNN – Samtök um náttúruvernd endurvakin

Undanfarna mánuði hefur hópur áhugafólks um umhverfismál og náttúruvernd unnið að endurreisn Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) og var haldinn

SUNN – Samtök um náttúruvernd endurvakin
Fréttatilkynning - - Lestrar 274

Frá aðalfundi SUNN. Ljósmynd aðsend.
Frá aðalfundi SUNN. Ljósmynd aðsend.

Undanfarna mánuði hefur hópur áhugafólks um umhverfismál og náttúruvernd unnið að endurreisn Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) og var haldinn kynningarfundur um það málefni á Akureyri þann 2. apríl sl. og mættu þar um 90 manns.

Starfsemi SUNN hefur legið að mestu niðri undanfarin ár þar sem enginn gaf kost á sér sem formaður stjórnar. En nú er ákveðið að endurvekja SUNN og hefur sú hugmynd fengið góðan meðbyr. Fyrsti aðalfundur samtakanna í ellefu ár var haldinn 11.maí síðastliðinn á Akureyri. Á fundinn mættu um 40 manns og var þá kosin ný stjórn sem samanstendur af fólki víðsvegar að af Norðurlandi.

Í stjórn eru Harpa Barkardóttir (formaður) frá Svalbarðsströnd, Sævar Þór Halldórsson (Akureyri), Bryndís Pétursdóttir (Þingeyjarsveit), Steinþór Heiðarsson (Tjörnesi), Inga Katrín D. Magnúsdóttir (Skagafirði) og í varastjórn Guðrún Anna Óskarsdóttir (Dalvík) og Hólmfríður Sólveig Haraldsdóttir (Akureyri).


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744