Styttist í landsmót 50 ára og eldri.Almennt - - Lestrar 309
Landsmót UMFÍ fyrir íþróttafólk sem náð hefur 50 ára aldri verður í Hveragerði dagana 23.-25.júní. Þetta er í sjöunda skipti sem þessi gerð landsmóta er haldið en mótið var fyrst haldið árið 2011.
Vonast er til þess að HSÞ sendi öflugt lið en keppt er í fjölbreyttum íþróttagreinum á borð við frjálsum íþróttum, sundi, pönnukökubakstri og jurtagreiningu. Skráningarfrestur er til 18.júní og fer skráning fram á skráningarvef UMFÍ. Innan HSÞ er starfandi íþróttanefnd fullorðinna félagsmanna en keppendum er bent á að hafa samband við nefndarmenn en þeir eru:
Árna Garðar Helgason, 868 7749
Reinhard Reynisson, 863 6622
Þórir Aðalsteinsson, 865 8602
Full ástæða er til að hvetja fólk til að taka þátt í þessum skemmtilega móti og njóta þess frábæra félagsskap sem gerir sér ferð í Hveragerði.