Stórt skref stigið á Bakka þegar tengt var við flutningskerfi Landsnets

Stórt skref var stigið í dag í undirbúningi vegna gangsetningu kísilvers PCC á Bakka þegar verksmiðjan var tengd við flutningskerfi Landsnets.

Renato, Sigmundur og Jóhann. Lj. pcc.is
Renato, Sigmundur og Jóhann. Lj. pcc.is

Stórt skref var stigið í dag í undirbúningi vegna gangsetningu kísilvers PCC á Bakka þegar verksmiðjan var tengd við flutningskerfi Landsnets.

Á heimasíðu PCC BakkaSilicon segir Sigmundur Jónsson rafveitustjóri og Jóhann Helgason framkvæmdastjóri tæknisviðs hafi leitt verkið ásamt Renato Silvestre rafmagnstæknifræðingi og með dyggri aðstoð annarra starfsmanna.

"Við erum því tilbúin að taka við orku frá Þeistareykjavirkjun þegar framleiðsla hefst. Framkvæmdir ganga ágætlega og prófanir á búnaði ganga vel, þótt enn sé nokkuð í land að gangsetning fyrri ofnsins geti hafist. Snjókoma og kuldi hafa haft áhrif að undanförnu en ekki meira en svo að við reiknum með því að setja verksmiðjuna okkar í gang um næstkomandi mánaðarmót, þ.e. febrúar-mars.

Báðir ofnar eru nánast tilbúnir og mötunarkerfi fyrir hráefni er einnig að verða tilbúið til notkunar. Vinna við tækjasamstæður til að mala og pakka kíslinum er komin styst á veg en hún ætti að klárast á réttum tíma". Segir á heimasíðunni en öflugur hópur vinnur þessa dagana við prófanir á tölvubúnaði og öðrum kerfum verksmiðjunnar.

Jafnframt segir að allt hráefni sé komið á staðinn og allt starfsfólk hefur verið ráðið.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744