Stórsigur hjá stelpunum í fyrsta leik Lengjubikarsins

Völsungur lék sinn fyrsta leik í Lengjubikar kvenna í dag þegar þær sóttu Sindra/Einherja heim í Fjarðarbyggðarhöllina á Reyðarfirði.

Hulda Ösp skoraði tvennu. Mynd úr safni
Hulda Ösp skoraði tvennu. Mynd úr safni

Völsungur lék sinn fyrsta leik í Lengjubikar kvenna í dag þegar þær sóttu Sindra/Einherja heim í Fjarðarbyggðarhöllina á Reyðarfirði.

Völsungur sigraði leikinn örugglega 0-4. Hulda Ösp Ágústsdóttir kom Völsungum á bragðið með eina marki fyrri hálfleiks. hún bætti svo við öðru marki sínu þegar skammt var liðið á síðari hálfleik. 

Arnhildur Ingvarsdóttir skoraði þriðja markið og Krista Eik Harðardóttir skoraði fjórða og síðasta mark leiksins. 

Hér má sjá stöðuna í 3 riðli C-deildar kvenna.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744