Stórsigur á Huginn

Völsungur sigraði Huginn frá Seyðisfirði 6-2 í stórskemmtilegum leik í gær.

Stórsigur á Huginn
Íþróttir - - Lestrar 554

Ásgeir skoraði þrennu gegn Hugin.
Ásgeir skoraði þrennu gegn Hugin.

Völsungur sigraði Huginn frá Seyðisfirði 6-2 í stórskemmtilegum leik í gær.

Leikið var á Húsavík og eftir jafnan fyrri hálfleik komu þeir grænu grimmir inn í síðari hálfleikinn og völtuðu yfir gestina.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson og Bjarki Baldvinsson höfðu skorað fyrir Völsung í fyrri hálfleik og gestirnir einnig skorað tvö.Staðan því 2-2.

Síðari hálfleikur var einungis tveggja mínútna gamall þegar Guðmundur Óli Steingrímsson kom heimamönnu yfir aftur, hans fjórða mark í sumar.

Ásgeir Kristjánsson setti síðan þrennu á korterskafla um miðjan síðar hálfleik og kappinn komin með fimm mörk í fyrstu fimm leikjum sumarsins í 2. deild.

Sem sagt stórsigur Völsungs í höfn. Lokastaðan 6-2 og Völsungur og Afturelding eru efst með 13 stig, en Mosfellingar með betri markamun. Kári frá Akranesi og Þróttur úr Vogum koma síðan í jöfn í 3-4 sæti með 12 stig.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744