Steypireyðurin kemur til Húsavíkur

Frá því að beinagrind 25 metra langrar steypireyðar rak á land á Skaga árið 2010 hefur Hvalasafnið á Húsavík beitt sér fyrir því að hún yrði hreinsuð og

Steypireyðurin kemur til Húsavíkur
Almennt - - Lestrar 179

Bein úr steypireiðinni. lj. hvalasafn.is
Bein úr steypireiðinni. lj. hvalasafn.is

Frá því að beinagrind 25 metra langrar steypireyðar rak á land á Skaga árið 2010 hefur Hvalasafnið á Húsavík beitt sér fyrir því að hún yrði hreinsuð og færð til varðveislu, en einnig að hún fengi sinn sess á Hvalasafninu, innan um beinagrindur annarra hvaltegunda og hjá og með upplýsingum um þessar stærstu skepnur jarðar.

 

Grindin var færð til hreinsunar og hefur safnið sagt sögu þess ferlis, ma. annars í núverandi sýningu.

Á heimasíðu Hvalasafnsins kemur fram að þann 27. ágúst sl, hafi safninu borist formlega bréf frá mennta- og menningarráðuneytinu þar sem tilkynnt var um að grindin komi til með að koma norður til varðveislu um óákveðinn tíma. Unnið verður að frekari útfærslum er varða flutning og samningstíma á næstu dögum.

"Þetta eru að sjálfsöðu gleðifréttir fyrir safnið og samfélagið allt og vill starfsfólk Hvalasafnsins koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem hönd hafa lagt á plóg og komið að vinnu við þennan áfanga.

Það má því segja að sé mikill uppbyggingartími framundan, en núverandi sýningum og sýningarrými safnsins verður breytt til þess að koma fyrir þessum glæsilega nýja sýningargrip". Segir í fréttinni á heimasíðu Hvalasafnsins.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744