Steinholt – saga af uppruna nafna

Sýning Christopher Taylor, Steinholt, saga af uppruna nafna verður opnuð í Safnahúsinu á Húsavík sunnudaginn 13. ágúst kl. 20:00.

Steinholt – saga af uppruna nafna
Fréttatilkynning - - Lestrar 685

Sýning Christopher Taylor, Steinholt, saga af uppruna nafna verður opnuð í Safnahúsinu á Húsavík sunnudaginn 13. ágúst kl. 20:00. 

Ljósmyndarinn Christopher Taylor, er fæddur og uppalinn í Bretlandi en er í dag búsettur í Frakklandi. Christopher hefur unnið að margvíslegum ljósmyndaverkefnum og haldið sýningar víða um heim. Steinholt – saga af uppruna nafna fjallar um minningu staðar.

Christopher Taylor dvaldi á Þórshöfn og ferðaðist um svæðið þar í kring til að gera umhverfinu skil og greina frá minningum sem tengjast Steinholti. Eiginkona Christophers, Álfheiður, á rætur á Þórshöfn á Langanesi. Afi hennar og amma, byggðu þar húsið Steinholt árið 1929. Þegar Álfheiður var barn var hún send yfir sumartímann í  Steinholt til ömmu sinnar og nöfnu. Stundirnar þar eru meðal hennar bestu æskuminninga.

Christopher vann að ljósmyndunum á sýningunni í kjölfar óvænts atburðar eftir heimsókn Álfheiðar í Steinholt eftir langa fjarveru. Sýningin er innblásin af forfeðrum Álfheiðar sem ferðuðust vítt og breitt um svæðið í leit að atvinnu eða búsetu.

Á árinu kom út bókin Steinholt með ljósmyndum Taylor. Í bókina rita Monica Dematté og Chirstopher sjálfur. Sýningin var sett upp í Þjóðminjasafni Íslands á fyrri hluta ársins og valin verk af sýningunni voru sýnd í Sauðaneshúsi fyrr í sumar.

Sýningaropnunin er öllum opin og sýningin stendur til septemberloka


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744