Snæbjörn ráðinn í tímabundin verkefni hjá stéttarfélögunum

Snæbjörn Sigurðarson hefur verið ráðinn í tímabundin verkefni á vegum stéttarfélaganna.

Snæbjörn Sigurðarson. Ljósmynd Framsýn.
Snæbjörn Sigurðarson. Ljósmynd Framsýn.

Snæbjörn Sigurðarson hefur verið ráðinn í tímabundin verkefni á vegum stéttarfélaganna.

Frá þessu greinir á heimasíðu stéttarfélaganna en Miklar annir hafa verið á skrifstofunni, ekki síst þar sem þetta er samningaár, þar sem flestir kjarasamningar sem stéttarfélögin eiga aðild að voru lausir á þessu ári.

Sem dæmi má nefna, þá er enn ósamið við ríki og sveitarfélög vegna kjarasamninga fyrir starfsfólk sem starfar hjá þessum opinberu aðilum. Þá er líka ósamið við Landsvirkjun. Mikill tími hefur því farið í samningagerð á árinu sem enn er ekki séð fyrir endann á.

Snæbjörn sem lengi starfaði hjá stéttarfélögunum áður en hann hóf störf hjá Norðurþingi mun fyrst og fremst einbeita sér að bókhaldi og skráningu þess í tölvukerfi stéttarfélaganna. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744