22. apr
Smári sigraði Páskamót GM-HellisÍþróttir - - Lestrar 321
Smári Sigurðsson vann sigur á Páskaskámóti GM-Hellis með 5,5 vinninga af sex mögulegum en mótið fór fram á Húsavík í gær.
Smári vann allar sínar skákir utan eina við Jakob Sævar bróðir sinn en þeir gerðu jafntefli.
Jakob Sævar og Hlynur Snær Viðarsson urðu jafnir í öðru til þriðja sæti með 4,5 vinninga. Umhugsunartíminn var 10 mín á mann að viðbættum 5 sek á hvern leik.
Lokastaðan:
1. Smári Sigurðsson 5,5 af 6
2-3. Hlynur Snær Viðarsson 4,5
2-3. Jakob Sævar Sigurðsson 4,5
4. Hermann Aðalsteinsson 3,5
5. Ævar Ákason 2
6. Sigurbjörn Ásmundsson 1
7. Jón A. Hermannsson 0