Sláturtíð Norðlenska á Húsavík lokiðAlmennt - - Lestrar 601
Sláturtíð Norðlenska á Húsavík lauk í gær, 30. október en sláturtíðin í ár er lengsta sláturtíð síðustu ára en slátrun hófst 30. ágúst.
Alls komu 120 starfsmenn til starfa við sláturtíðina þetta haustið og af 14 þjóðernum en alls störfuðu 175 manns í sláturtíðinni í haust.
Aldrei hefur fleiri gripum verið slátrað á Húsavík en um 95.436 gripum voru slátrað í haust sem er 78 gripum færri en í fyrra sem var metár í slátrun á Húsavík. Meðalvigt dilka var með hærra móti þetta haustið en hún var 16,69 kíló.
Miðað við fjölda af slátruðu fullorðnu fé má reikna með því að sauðfé hafi heldur fækkað á upptökusvæði Norðlenska á Húsavík. Það er þó ekki um verulega fækkun að ræða segir á heimsíðu Framsýnar en þar má skoða fleiri myndir úr heimsókn í Norðlenska.