30. ágú
Sláturtíð hafin hjá NorðlenskaAlmennt - - Lestrar 400
Sauðfjárslátrun hófst hjá Norðlenska á Húsavík í gær.
Á heimasíðu fyrirtækisins segir að búið sé að ráða rúmlega 100 starfsmenn af 12 þjóðernum til viðbótar við þann fjölþjóðlega hóp starfsfólks sem fyrir er á starfsstöðinni.
Reiknað er með að rúmlega 100.000 dilkum verði slátrað á tímabilinu fram til loka október og hefur slátrun á Húsavík aldrei verið meiri.
Ástæðan er aðallega sú að slátrun á Höfn í Hornafirði hefur verið lögð niður og færist að miklu leyti til Húsavíkur.
Meðfylgjandi er mynd af Halldóri Sigurðssyni réttarstjóra til margra ára þegar hann tók á móti fyrstu kindum haustsins.