Skútustaðahreppur fékk þrjár íbúðir afhentar í Klappahrauni

Skútustaðahreppur fékk í gær afhentar þrjár glænýjar íbúðir í Klappahrauni 16 sem verktakinn Húsheild hefur byggt síðustu mánuði.

Ólafur Ragnarsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Ólafur Ragnarsson og Þorsteinn Gunnarsson.

Skútustaðahreppur fékk í gær afhentar þrjár glænýjar íbúðir í Klappahrauni 16 sem verktakinn Húsheild hefur byggt síðustu mánuði.

Á heimasíðu Skútustaðahrepps segir að þetta verkefni hafi farið af stað í kjölfarið á því að sveitar-félagið vann húsnæðisáætlun sem kynnt var á íbúafundi vorið 2018. Verktakinn Húsheild ehf. sýndi strax áhuga að byggja íbúðir á hagkvæmu verði og hefur nú byggt tvö fullbúin raðhús með átta íbúðum.

Fosshótel hefur keypt annað raðhúsið og sveitarfélagið þrjár íbúðir í hinu raðhúsinu. Framleiðandi húsanna sem Húsheild flytur inn er Mjöbäcks í Svíþjóð sem hefur byggt hús í yfir 70 ár. Húsin eru vel einangruð og öll hönnun ásamt tækjum og búnaði gera það að verkum að orkukostnaður og rekstrarkostnaður er mun lægri en tíðkast hefur.

Húsin afhendast fullbúin með vönduðum innréttingum. Um er að ræða tvær stærðir af íbúðum, þ.e. 106 og 68 ferm. Þá eru íbúðirnar tengdar við nýtt fráveitukerfi í Klappahrauni með svokölluðu vaccumkerfi þar sem svartvatn og grávatn er aðskilið og svartvatnið er í lokuðu kerfi. Er þetta fyrsta gata sinnar tegundar hér á landi og líklega í heiminum að sögn Jets framleiðandans á kerfinu í Noregi.

Sveitarfélagið hefur þegar leigt íbúðirnar þrjár til starfsfólks sem vinnur hjá Skútustaðahreppi. Fengu fyrstu leigjendurnir íbúðirnar afhentar í dag. Fosshótel fékk sínar íbúðir afhentar á dögunum.

Á meðfylgjandi mynd sem fengin er af heimasíðu Skútustaðahrepps eru Ólafur Ragnarsson hjá Húsheild og Þorsteinn Gunnarsson sveitarstjóri.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744