Skógardagur Norđurlands í Kjarnaskógi á laugardagAlmennt - - Lestrar 256
Á Skógardegi Norđurlands sem haldinn verđur á laugardag í Kjarnaskógi verđur nýtt útivistar- og grillsvćđi á og viđ Birkivöll formlega tekiđ í notkun
Eiríkur Björn Björgvinsson bćjarstjóri ávarpar afmćlisbarniđ og skrifađ verđur undir samning um nýjan Yndisgarđ sem meiningin er ađ koma upp í skóginum međ úrvali skrautrunnategunda.
Frćđsla verđur um Yndisgarđinn í „fundarsal“ sem útbúinn hefur veriđ undir greinum stórra grenitrjáa í skóginum. Guđríđur Gyđa Eyjólfsdóttir sveppafrćđingur sýnir ýmsar sveppategundir sem lifa í skóginum. Ólafur Oddsson frćđslufulltrúi Skógrćktarinnar, kennir réttu handbrögđin viđ tálgun og fólk fćr ađ prófa ađ tálga töfrasprota og fleira. Skátar kynna hátíđ sem fer fram á Hömrum um kvöldiđ og svo verđur auđvitađ ketilkaffi, lummur, popp, svaladrykkir, sveppasúpa, ratleikur, frćđsluganga um Birkivöll og nágrenni ásamt fleiru.
Kjarnaskógur er í fremstu röđ útivistarsvćđa í skógi á Íslandi og styrkir sig enn í ţeim sessi međ ţví sem komiđ hefur veriđ upp á Birkivelli undanfarin ár. Ţar eru fjórir fullbúnir strandblakvellir sem mikiđ eru notađir, völundarhús, snyrtingar og bílastćđi, tvö borđtennisborđ, kirsuberjagarđur međ 70 rósakirsitrjám, ćvintýraskógur, fjöldi trjátegunda, uppblásinn ćrslabelgur, veriđ er ađ byggja upp smágolfvöll, hjólastólaróla er á Birkivelli og fjölbreytileg leiktćki önnur, áđurnefndur fundarsalur og auđvitađ grillhúsiđ nýja međ bćđi rafmagnslögnum og rennandi vatni.
Loks er vert ađ geta ţess ađ nú hefur veriđ útbúinn létthringur í Kjarnaskógi sem fćr verđur öllu fólki, háum sem lágum, ungum sem gömlum, gangandi eđa í hjólastól. Hringur ţessi liggur m.a. um hinn nýja Birkivöll.
Ađ Skógardegi Norđurlands standa Skógrćktarfélag Eyfirđinga, Skógrćktin, Félag skógarbćnda á Norđurlandi, Sólskógar og Akureyrarbćr. (skogur.is)