Skemmukönguló barst Náttúrustofu Norðausturlands

Náttúrustofa Norðausturlands fékk í dag stóra könguló til greiningar en hún hafði fundist í vaski á Hvalasafninu.

Skemmukönguló. Ljósmynd nna.is
Skemmukönguló. Ljósmynd nna.is

Náttúrustofa Norðausturlands fékk í dag stóra könguló til greiningar en hún hafði fundist í vaski á Hvalasafninu.

Á heimasíðu NNA segir að þetta hafi reynst vera skemmukönguló (Eratigena atrica) sem er ein af stærstu köngulóartegundum sem hér finnst.

Skemmukönguló finnst eingöngu innanhúss hérlendis og eins og nafnið bendir til eru skemmur og vörulagerar aðal  heimkynni hennar. Hún líkist mjög húsaköngulónni en er miklu stærri og alveg meinlaus. Hún hefur fundist reglulega síðustu áratugi og er því að öllum líkindum komin í hóp þeirra tegunda sem hafa hér fasta búsetu.

Þetta er í þriðja sinn sem Náttúrustofa Norðausturlands fær þessa tegund til greiningar svo líklega er hún búin að taka sér bólfestu hér á Húsavík. Þetta er skemmtileg viðbót við skordýrafánuna hér enda er skemmuköngulóin gullfalleg eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Nánar má lesa um skemmukönguló á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744