Sigurkarl Evrópumeistari í vaxtarrækt

Sigurkarl Aðalsteinsson varð Evrópumeistari í sínum flokki í vaxtarrækt í gær er hann keppti á Evrópumóti IFBB – Alþjóðasambands líkamsræktarmanna sem

Sigurkarl Evrópumeistari í vaxtarrækt
Íþróttir - - Lestrar 444

Sigurkarl ánægður með verðlaunin. Lj. E.G
Sigurkarl ánægður með verðlaunin. Lj. E.G

Sigurkarl Aðalsteinsson varð Evrópumeistari í sínum flokki í vaxtarrækt í gær er hann keppti á Evrópumóti IFBB – Alþjóða-sambands líkamsræktarmanna sem haldið er í Santa Susanna á Spáni.

Sigurkarl, sem er fæddur og uppalinn húsvíkingur, keppti í flokki 55 ára og eldri undir 75 kg.

Frá þessu er greint á vefnum fitness.is en þar segir að þetta sé merkilegur áfangi þar sem þetta sé í fyrsta skipti sem Íslendingar eignast Evrópumeistara í vaxtarrækt.

Þetta er líka í fyrsta skipti sem íslenskur karlmaður nær titli af þessari stærðargráðu á þessum mótum. 

Sigurkarl sem er 60 ára keppti nýverið á Íslandsmótinu sem fór fram í Háskólabíói og er í sínu besta formi. Flokkurinn sem hann keppti í var mjög öflugur en Sigurkarl kom afar vel undirbúinn til keppni og stóð uppi sem sigurvegari í flokknum. 

Í dag keppir Sigurkarl í heildarkeppninni við sigurvegara í öðrum vaxtarræktarflokkum. Fjórir íslenskir keppendur eru að keppa á Evrópumótinu. Auk Sigurkarls eru það Vijona Salome, Alda Ósk Hauksdóttir og Ana Markovic. 

Meðfylgjandi mynd tók Einar Guðmann ritstjóri fitness.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744