29. jún
Sigur á VopnafirðiÍþróttir - - Lestrar 604
Völsungur gerði góða ferð á Vopnafjörð í gær þegar leiki var gegn Einherja í 2. deild kvenna.
Völsungur byrjaði leikinn vel og Krista Eik Harðardóttir kom þeim grænu yfir á fimmtu mínútu. Jóney Ósk Sigurjónsdóttir tvöfaldaði forystuna á 34 mínútu.
Og þar við sat, ekki besti leikur sem stelpurnar hafa spilað en góður sigur og þrjú stig í höfn
Völsungur er í fjórða sæti með níu stig eftir sex leiki.