Síðasti heimaleikur ársins í blakinu

Síðasti heimaleikur Völsungs í Mizunodeild kvenna í blaki fer fram í íþróttahöllinni annað kvöld.

Síðasti heimaleikur ársins í blakinu
Íþróttir - - Lestrar 488

Síðasti heimaleikur Völsungs í Mizunodeild kvenna í blaki fer fram í íþróttahöllinni annað kvöld.

Þá mæta þær KA og er því um að ræða nágrannaslag af dýrustu sort.

Liðin áttust við í október og var sá leikur spennuþrunginn frá upphafi til enda en sigurinn datt því miður vestan megin Víkurskarðs í það skiptið eins og segir á fésbókarsíðu Völsunga. 

Liðin deila 5-6 sæti deildarinnar með fimm stig hvort og allar líkur á hörkuleik jafnra liða sem bæði vilja ná sér í betri stöðu fyrir jólafrí.
 
Heimavöllurinn ásamt diggum stuðningi  áhorfenda hefur reynst Völsungsstúlkum vel.  Öll fimm stigin hingað til komið á heimavelli í haust í leikjum gegn Aftureldingu og Þrótti Reykjavík.
 
Völungsstelpur vonast til að sjá sem flesta í stúkunni miðvikudagskvöldið 13. desember kl. 19:30.
 
Frítt inn - frjáls framlög og sjoppan sívinsæla á staðnum. 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744