Stefna á byggingu nýs hjúkrunarheimilis á HúsavíkAlmennt - - Lestrar 382
Stefnt er að því að byggja 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík, í samvinnu ríkis og fjögurra sveitarfélaga.
Áætlaður kostnaður eru rúmir tveir milljarðar en fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá þessu í dag.
Þar segir að Norðurþing, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit standi að rekstri dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hvamms á Húsavík. Húsnæðið er orðið gamalt og uppfyllir ekki nútímakröfur, að sögn Kristjáns Þórs Magnússonar, sveitarstjóra í Norðurþingi.
„Við erum allavega búin að bíða mjög lengi eftir því að þetta verði að veruleika og höfum róið að því til fjölda ára að verði gerðar úrbætur hér á því húsnæði sem við erum að nota núna til þessarar þjónustu og er auðvitað bara barn síns tíma,“ segir Kristján Þór.