Stefna á byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík

Stefnt er að því að byggja 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík, í samvinnu ríkis og fjögurra sveitarfélaga.

Stefnt er að því að byggja 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík, í samvinnu ríkis og fjögurra sveitarfélaga.

Áætlaður kostnaður eru rúmir tveir milljarðar en fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá þessu í dag.

Þar segir að Norðurþing, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit standi að rekstri dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hvamms á Húsavík. Húsnæðið er orðið gamalt og uppfyllir ekki nútímakröfur, að sögn Kristjáns Þórs Magnússonar, sveitarstjóra í Norðurþingi.

„Við erum allavega búin að bíða mjög lengi eftir því að þetta verði að veruleika og höfum róið að því til fjölda ára að verði gerðar úrbætur hér á því húsnæði sem við erum að nota núna til þessarar þjónustu og er auðvitað bara barn síns tíma,“ segir Kristján Þór.

Lesa nánar hér


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744