Samrunaviðræður Norðlenska og Kjarnafæðis á ís

Samrunaviðræður og vinna við undirbúning samruna Norðlenska annarsvegar og Kjarnafæðis og SAH afurða hinsvegar hefur verið sett á ís.

Samrunaviðræður og vinna við undirbúning samruna Norðlenska annarsvegar og Kjarnafæðis og SAH afurða hinsvegar hefur verið sett á ís.  

Í tilkynningu á vef Norðlenska í dag segir að viðræður hafa staðið milli Norðlenska og Kjarnafæðis frá vormánuðum 2018 um mögulegan samruna félaganna. 

Formlegt ferli í átt að samruna hófst svo í ágúst 2018.  Á þessum tíma hefur aðilum ekki tekist að komast að endanlegu samkomulagi um fyrirkomulag samruna félaganna, menn hafa einfaldlega ekki náð saman og ber enn talsvert í milli. 

Viðræðurnar eru því komnar á ís og verður ekki séð að þeim verði fram haldið nema einhver nýr vinkill komi á málið.

Norðlenska hefur því hafið að nýju vinnu við undirbúning nýrrar starfstöðvar félagsins á Akureyri en sú vinna var lögð til hliðar meðan viðræður um sameingu stóðu yfir segir í tilkynningunni


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744