Salka komin heimAlmennt - - Lestrar 415
Í dag kom hvalaskoðunarbáturinn Salka til heimahafnar á Húsavík í fyrsta sinn. Það eru Sölkusiglingar sem eiga skipið svo Salka er annað skipið í þeirra flota en áður eiga þau hvalaskoðunarbátinn Fanneyju. Salka kom frá Stykkishólmi þar sem hún hefur verið í slipp og nokkur fjöldi fólks tók á móti henni, bæði frá landi og af sjó en Fanney sigldi gegn þessari nýju systur sinni með nokkurn fjölda fólks.
„Það hefur gengið mjög vel þau ár sem við höfum verið með hvalaskoðun svo við erum að bregðast við miklum straumi fólk til okkar með því að bæta þessum bát við.“ Segir Börkur Emilsson, einn eigenda Sölkusiglinga. „Við hlökkum til sumarins á Sölku og Fanneyju. Salka er tilbúin í sumarið, eins og allt starfsfólkið sem siglir á bátunum. Það er alveg magnað að sjá áhugann og ástríðuna hjá þessu fólki sem vinnur á bátunum.“ bætir Börkur við.
640.is var með í siglingunni sem tók á móti Sölku í kvöld. Meðfylgjandi eru myndir úr ferðinni.
Salka siglir til hafnar
Börkur Emilsson