17. júl
Sæþór komin í Völsung á lániÍþróttir - - Lestrar 773
Völsungur hefur styrkt sig fyrir lokaátökin í 2.deildinni þar sem liðið situr í 3.sæti eftir að fyrri umferð deildarinnar er lokið.
Húsvíkingurinn Sæþór Olgeirsson kemur á láni frá KA út sumarið. Sæþór þarf vart að kynna fyrir Húsvíkingum en hann skoraði 23 mörk í 21 deildarleik fyrir Völsung síðasta sumar.
Mikill liðstyrkur fyrir Völsunga sem binda miklar vonir við að innkoma Sæþórs veiti liðinu góða innspýtingu fyrir lokasprettinn.