Reykjafoss sá fyrsti í 11 árAlmennt - - Lestrar 703
Reykjafoss, skip Eimskipafélags Íslands, kom til Húsavíkur eftir hádegi í dag og lagðist að Bökugarðinum.
Þetta er í fyrsta skipti síðan í nóvember 2004 sem skip félagsins hefur haft viðkomu á Húsavík en þá lauk strandsiglingum í þeirri mynd sem þá var.
Þessi viðkoma er tilkomin vegna aukinna umsvifa í Norðurþingi, bæði á svæðinu við Þeistareyki og á Bakka.
Í fréttatilkynningu frá Eimskip segir að atvinnurekendur á svæðinu séu að vonum ánægðir með þessa auknu þjónustu Eimskips og og sagði Gunnlaugur Karl Hreinsson, forstjóri GPG að hann fagnaði því að Reykjafoss hefði nú viðkomu á Húsavík á leið sinni til Evrópu.
Reykjafoss er fyrsta skip Eimskafélagsins sem hefur viðkomu á Húsavík í 11 ár.
Karl Óskar Aðalsteinsson starfsmaður Norðurþings og Vilhjálmur Sigmundsson hjá Eimskip taka hér við endunum.
Reykjafoss er með stærri fragtskipum sem til Húsavíkur hafa komið eða 127 metrar á lengd.
með því að smella á myndirnar má fletta þeim og skoðaí stærri upplausn.
Hér má skoða myndir frá því þegar Mánafoss sigldi í hinsta sinn frá Húsavík 29. nóvember 2004