Rebekka Kristín ráðin til SSNE

Rebekka Kristín Garðarsdóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra hjá SSNE.

Rebekka Kristín ráðin til SSNE
Almennt - - Lestrar 401

Rebekka Kristín Garðarsdóttir.
Rebekka Kristín Garðarsdóttir.

Rebekka Kristín Garðarsdóttir hefur verið ráðin í starf verk-efnastjóra hjá SSNE.

Rebekka er uppalin á svæðinu, hefur búið á Kópasker, Raufarhöfn, Þórshöfn og Akureyri.

Undanfarin 18 ár hefur hún búið í Asíu, aðallega í Hong Kong og starfað á alþjóðlegum markaði.

Rebekka Kristín er með BSc próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að hafa alþjóðlegt IATA-UFTAA próf í ferðamálafræði.

Í tilkynningu segir að Rebekka hafi starfað við umfangsmikla verkefnastjórnun, stjórnun og rekstur um 18 ára skeið. Rebekka hefur verið í leiðandi hlutverki í störfum sínum og hluti af verkefnum hennar hafa verið stofnun, uppsetning og rekstur fyrirtækis, uppsetning starfsstöðva, sókn á nýja markaði, fyrirtækjaráðgjöf, viðburðastjórnun, nýsköpun og daglegur rekstur og stjórnun. Hún hefur því yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á öllum þessum sviðum.

Rebekka hefur haft atvinnu af tengslamyndun og eftir langa dvöl erlendis er Rebekka með afburðagóða hæfni í ensku og góðan skilning á fjölbreytileika mannlífsins.

Alls sóttu 75 einstaklingar um stöðu verkefnastjóra. 


 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744