Rannsóknir á örverulífríki í Öxarfirði

Fyrr í þessum mánuði var undirritaður samningur á milli Háskólans á Akureyri og Orkustofnunar um rannsóknir á örverulífríki gasaugna í Öxarfirði.

Rannsóknir á örverulífríki í Öxarfirði
Almennt - - Lestrar 303

Fyrr í þessum mánuði var undirritaður samningur á milli Háskólans á Akureyri og Orkustofnunar um rannsóknir á örverulífríki gasaugna í Öxarfirði.

Verkefnið er áframhald á rannsóknum undanfarinna tveggja ára. Nemendur og kennarar við Háskólann á Akureyri hafa ásamt sérfræðingum frá Orkustofnun og ÍSOR unnið að rannsóknum á þeim örverum sem þrífast í gasaugum á Austursandi í Öxarfirði, þar sem metangas streymir upp úr sandinum.

Tilgangur rannsóknanna er margþættur. Meðal rannsóknaspurninga má nefna:

  • hvort uppruna gassins sé að leita í jarðhitakerfum eða kolalögum undir sandinum,
  • hvort nýta megi örverulífríki gasuppstreymisaugna til að spá fyrir um samsetningu undirliggjandi jarðlaga,
  • hvort örverurnar megi nýta til hreinsunar á olíuefnum úr menguðu umhverfi, svo sem eftir mengunarslys, við íslenskar aðstæður.

Samninginn undirrituðu Þórarinn Sveinn Arnarson, verkefnisstjóri eldsneytismála og orkuskipta, fyrir hönd Orkustofnunar og Oddur Vilhelmsson, prófessor í líftækni, fyrir hönd Háskólans á Akureyri.

Rannsóknir á örverulífríki í Öxarfirði

Sýnatökuhópinn við Skógalón í september 2015. Jón Pétur Jóelsson, Helga Helgadóttir, Guðný Vala Þorsteinsdóttir, Finnbogi Óskarsson, og Anett Blischke söfnuðu sýnum til efnagreininga, erfðaefnisgreininga og örveruræktunar.

Ljósmynd unak.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744