Ra kaup Grmsstum

Ra kaup Grmsstum nstu dgum hefjast virur sveitarflaga ingeyjarsslum og Eyjafiri um sameiginleg kaup hluta Grmsstaa Fjllum.

Ra kaup Grmsstum
Almennt - Hafr Hreiarsson - Lestrar 177 - Athugasemdir (0)

 Grmstum. Lj. Auur Bjrk Gsladttir.
Grmstum. Lj. Auur Bjrk Gsladttir.

Á næstu dögum hefjast viðræður sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum og Eyjafirði um sameiginleg kaup á hluta Grímsstaða á Fjöllum. Bæjarstjóri Norðurþings vonast til að kínverski fjárfestirinn Huang Nubo verði búinn að leigja jörðina innan tveggja mánaða.

Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV í dag.

Bæjarráði Norðurþings voru síðdegis í gær kynntar niðurstöður úr viðræðum sem bæjarstjóri sveitarfélagsins og umboðsmaður Huangs Nubo hér á landi áttu við kínverska fjárfestinn í Peking. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, segir meginniðurstöðuna þá að Huang vill halda áfram með fjárfestingaráform sín á Grímsstöðum á Fjöllum. Nú verði reynt að finna lausnir til að það geti gengið eftir og næstu daga hefjist viðræður um kaup á ríflega 70 prósenta hlut jarðarinnar og þar muni fleiri en Norðurþing koma að málum, sveitarfélög og jafnvel stærri fjárfestar.


Bergur segir að þetta séu ekki eingöngu hagsmunir sveitarfélagsins Norðurþings, heldur einnig  sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum og Eyjarfirði. Það megi vel vera að niðurstaðan verði sú að menn tengi sig saman í þeim málum, en með hvað hætti það verði, liggi ekki ljóst fyrir á þessari stundu. 

Fram hefur komið pólitísk andstaða við þetta mál. Þannig hvatti innanríkisráðherra menn til að fara varlega og benti á að langtímaleiga á landi geti reynst ígildi eignarhalds.

Bergur seguir að þetta hafi snúist um eignina á landinu, það verði ekki vandamál. Þetta snúist einfaldlega um einstakling sem vilji byggja hótel í sveitarfélaginu og efla ferðaþjónustu verulega í Eyjafirði. Einnig fjárfesta í Reykajvík. Bergur segist eiga erfitt með að sjá að stjórnmálamenn geti lagst gegn slíku.

Bergur segist meta það svo að ekki muni langur tími líða þar til búið verði að klára þetta mál og Huang Nubo verði kominn með langtíma leigusamning á Grímsstöðum. Hann kveðst vona að niðurstaða liggi fyrir innan sex tíl átta vikna. (ruv.is)


640.is | byrgarmaur Hafr Hreiarsson | vefstjori@640.is | Smi: 895-6744