Píslargangan verður gengin í 25. skipti á Föstudaginn langa

Píslargangan umhverfis Mývatn verður gengin í 25 sinn á föstudaginn langa 19. apríl næstkomandi.

Píslargangan verður gengin í 25. skipti á Föstudaginn langa
Fréttatilkynning - - Lestrar 171

Píslargangan umhverfis Mývatn verður gengin í 25 sinn á föstudaginn langa 19. apríl næstkomandi. 

Píslargangan hefst á því að presturinn sr. Örnólfur Ólafsson á Skútustöðum syngur morguntíðir í Reykjahlíðarkirkju kl 8:45. Sjálf gangan hefst síðan kl. 9:00. Leiðin er 36 km. löng og gengur hver á sínum forsendum og sínum hraða. sr. Örnólfur mun síðan fyrir sig yfir í Skútustaðarkirkju og lesa Passíusálma. Leiðin er um 36km löng umhverfis vatnið, veðurspá er góð, 12 stiga hiti og sól um hádegi samkvæmt vedur.is. Allir vegir eru auðir og það mætti halda þessa dagana að hér sé vorið komið. 
 
Icelandair Hótel Mývatn bíður upp á heitan drykk við upphaf göngu kl 9:00. Mælum svo með Happy Hour hjá þeim á milli kl 16 og 18 og matseðli um kvöld á Myllan Restaurant.
 
Hótel Laxá verður með Happy Hour verð yfir daginn fyrir alla sem taka þátt í göngunni, velkomið að nota snyrtinguna.
Kaffi/te og bakkelsi í boði hjá þeim þennan dag.
 
Daddi's Pizza og Vogafjós eru opin!
 
Sel Hótel Mývatn er lokað þennan dag.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744