PCC BakkiSilicon - Kveikt verður á ofni uppúr miðnætti

Um miðnætti er áætlað að kveikja aftur á Birtu, ofni 1 í kísilveri PCC á Bakka en viðhaldsvinnu er lokið í bili.

Kísliver PCC á Bakka.
Kísliver PCC á Bakka.

Um miðnætti er áætlað að kveikja aftur á Birtu, ofni 1 í kísilveri PCC á Bakka en viðhaldsvinnu er lokið í bili.

Núna er rúmur mánuður síðan fyrst var kveikt á ofninum og þó svo margt hafi gengið vel hefur því miður þurft að slökkva reglulega á honum til að vinna að viðhaldi og umbótum. Vegna þessa eru hráefnin sem eru þar inni ekki í þeim hlutföllum sem ætlast er til.

"Því hefur verið tekin sú ákvörðun að hreinsa ofninn af þeim hráefnum sem eru í honum með svo kölluðu „burn down“. Þetta er ferli þar sem aukið afl er sett á rafskautin án þess að bæta við hráefnum og á meðan er málminum reglulega tappað úr ofninum þar til hann tæmist. Við þetta myndast drunur sem minna helst á lágtíðni hljóð úr bassaboxi. Þessar drunur geta heyrst til Húsavíkur og viljum við því láta fólk vita" segir í tilkynningu.

Það er áætlað að þetta hefjist í fyrramálið og mun standa yfir fram eftir degi. Eftir það er hráefnum matað í hann að nýju með réttum forskriftum. Mikill hiti myndast við þetta ferli og getur því farið svo að við þurfum að opna neyðarskorsteina til að varna síupokum í reykhreinsivirkinu og því gæti einhver reykur verið sjáanlegur.

Fyrirtækið mun halda áfram að upplýsa um framgang mála á heimasíðu þess og facebook.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744