PCC BakkiSilicon byrjar að ráða á ný eftir áramót

PCC Bakki mun ráða til sín fleiri starfsmenn að nýju upp úr áramótunum, gangi áætlanir eftir, en vonir standa til að verksmiðjan verði ræst á nýjan leik

Verksmiðja PCC á Bakka.
Verksmiðja PCC á Bakka.

PCC Bakki mun ráða til sín fleiri starfsmenn að nýju upp úr ára-mótunum, gangi áætlanir eftir, en vonir standa til að verksmiðjan verði ræst á nýjan leik að vori.

Þetta kom fram í tilkynningu frá fyrirtækinu fyrir helgi.

Þar segir jafnframt: 

"PCC greip til tímabundinnar stöðvunar á ofnum verksmiðjunnar í ágúst sl. til að gera nauðsynlegar endurbætur á reykhreinsivirki hennar. Vegna erfiðra heimsmarkaðsaðstæðna sem sköpuðust í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins var ákveðið að endurræsa verksmiðjuna ekki að svo stöddu.
 
Í kjölfarið þurfti óhjákvæmilega að grípa til hópuppsagna, en enn starfa þó ríflega 50 manns hjá fyrirtækinu sem vinna markvisst að frekari endurbótum á búnaði og undirbúningi endurræsingar.
 
Undanfarna mánuði hafa markaðir aðeins rétt úr kútnum, þó ekki svo að verð geti enn talist viðunandi. Vonir standa þó til að með vorinu munum við bæði sjá fram á lægri framleiðslukostnað sem og betri markaðsaðstæður og miðast nú vinnan á Bakka við að endurræsing verksmiðjunnar hefjist næsta vor.
 
Gangi þessar áætlanir eftir er ljóst að upp úr áramótum mun ráðningaferli starfsmanna hefjast. Jafnframt eru nú í gangi viðræður við birgja verksmiðjunnar varðandi endurræsinguna, það er ljóst að til að verksmiðjan geti talist samkeppnishæf á heimsmarkaði þá er gott samstarf við birgja lykilatriði".
 
Ljósmynd Hafþór - 640.is
 
Með því að smella á þessa mynd sem tekin var í morgun má skoða hana í hærri upplausn.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744