24. nóv
Páll Viðar Gíslason tekur við VölsungiÍþróttir - - Lestrar 402
Páll Viðar Gíslason mun taka við þjálfun Völsungs í 3. deild karla í knattspyrnu.
Páll Viðar tekur við af Ragnari Haukssyni sem lét óvænt af störfum á dögunumu af persónulegum ástæðum.
Páll Viðar hefur undanfarin fjögur ár þjálfað Þór á Akureyri en lét af störfum í haust eftir að liðið féll úr úrvalsdeildinni.
Heimild: fotbolti.net