Opnun gagnatorgs NorðurþingsAlmennt - - Lestrar 268
Á vef Norðurþings hefur verið opnað Gagnatorg þar sem nálgast má upplýsingar um íbúatölur, fjárhagsleg málefni sveitarfélagsins og rekstrartölur málaflokka síðustu þrjú ár.
Á vef Norðurþings segir að markmiðið með Gagnatorginu sé að gera upplýsingar úr rekstri sveitarfélagsins aðgengilegri og að auka gagnsæi í fjármálum og stjórnsýslu. Upplýsingarnar birtast meðal annars með myndrænni framsetningu í súlu- og línuritum.
Gagnatorgið er í stöðugri þróun og verður upplýsingum bætt þar inn jafnóðum og þær liggja fyrir. Allar ábendingar eru vel þegnar og má senda á netfangið nordurthing@nordurthing.is
"Er það von okkar að íbúar og aðrir hafi gagn og gaman af þeirri viðbót sem gagnatorgið er við upplýsingagjöf sveitarfélagsins" segir á vef Norðurþings en hér má finna tengil á Gagnatorgið
Á næstu dögum verður virkjaður tengill á gagnatorgið á forsíðuvef Norðurþings.