Okkar áfangastaður - DMP stöðuskýrsla komin út

Í dag kom út stöðuskýrsla vegna DMP-verkefnisins sem Markaðsstofa Norðurlands vinnur að, ásamt Ferðamálastofu, Selasetri Íslands og Atvinnuþróunarfélagi

Heimskautsgerðið. Lj. Hörður Jónasson.
Heimskautsgerðið. Lj. Hörður Jónasson.

Í dag kom út stöðuskýrsla vegna DMP-verkefnisins sem Markaðsstofa Norðurlands vinnur að, ásamt Ferðamála-stofu, Selasetri Íslands og Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga.

Í skýrslunni er farið yfir þá vinnu sem nú þegar er lokið, farið er yfir hvað er framundan og hverjar áherslur þess verða.

Búið er að velja 15 verkefni sem teljast til forgangsverkefna í ferðaþjónustu á Norðurlandi, en tilgangurinn verkefnisins er einmitt sá að kortleggja ferðaþjónustuna og stöðu hennar.

Alls bárust hugmyndir að 68 verkefnum.

Í skýrslunni kemur einnig fram hver framtíðarsýn Norðurlands er, en bæði hún og val á forgangsverkefnum er afrakstur svæðisfunda sem haldnir voru síðasta haust vegna DMP. Fundirnir voru vel sóttir og í tilkynningu þakkar Markaðsstofa Norðurlands þátttakendum kærlega fyrir þeirra framlag.

Skýrsluna má lesa með því að smella hér.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744