Nýr starfsmaður til starfa hjá VÞ

Verkalýðsfélag Þórshafnar hefur ráðið nýjan starfsmann á skrifstofu félagsins, Anetu Potrykus.

Nýr starfsmaður til starfa hjá VÞ
Almennt - - Lestrar 245

Aneta Potrykus. Ljósmynd framsyn.is
Aneta Potrykus. Ljósmynd framsyn.is

Verkalýðsfélag Þórshafnar hefur ráðið nýjan starfsmann á skrifstofu félagsins, Anetu Potrykus.

Hún mun hefja störf þann 25. júní n.k. og taka að fullu við rekstri skrifstofunnar þann 25. júlí n.k. en þá mun núverandi starfsmaður Sigríður Jóhannesdóttir láta af störfum. 

Svala Sævarsdóttir mun sitja áfram sem formaður félagsins en hún tók aftur við formennsku félagsins á síðasta aðalfundi þess.

Í tilkynningu segir að Aneta sé búsett á Þórshöfn ásamt manni sínum Dawid Potrykus og eiga þau saman 6 börn. Hún hefur BS próf í stjórnmálafræði og opinberri stjórnsýslu frá Lodz. Aneta starfaði áður í Landsbankanum á Þórshöfn og hefur einnig unnið við ýmis afgreiðslustörf.

Aneta er pólsk að uppruna en hefur búið ásamt fjölskyldu sinni á Íslandi í 12 ár. Sigríður Jóhannesdóttir sem lætur nú af stöfum hefur starfað á skrifstofu félagsins síðan 1. september 2016. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744