Nýr prestur skipaður í Langanes- og Skinnastaðaprestakall

Jarþrúður Árnadóttir hefur verið skipuð prestur í Langanes- og Skinnastaðaprestakalli, með aðsetur á Þórshöfn, frá og með 1. september n.k.

Jarþrúður Árnadóttir. Lj. kirkjan.is
Jarþrúður Árnadóttir. Lj. kirkjan.is

Jarþrúður Árnadóttir hefur verið skipuð prestur í Langanes- og Skinnastaðaprestakalli, með aðsetur á Þórshöfn, frá og með 1. september n.k.

Frá þessu er greint á vef Þjóðkirkjunnar en umsóknar-frestur rann út 18. júní sl.

Jarþrúður er fædd á Akureyri 12. október 1988. Hún lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 2009, og mag. theol., með embættisgengi árið 2017. Jarþrúður var skiptinemi í einn vetur við Det Teologiske Menighetsfakultetet í Osló, Noregi, 2015.

Jarþrúður hefur starfað víða á kirkjulegum vettvangi og nú síðast í Noregi sem óvígður guðfræðingur. Þá hefur hún unnið við umönnum þroskaskertra og aldraðra.

Annar umsækjandi um Langanes- og Skinnastaðaprestakall var cand. theol., Alfreð Örn Finnsson.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744