Nýr öflugur dráttarbátur á Norðurlandi

Um helgina kom nýr dráttarbátur Hafnarsamlags Norðurlands til heimahafnar á Akureyri.

Nýr öflugur dráttarbátur á Norðurlandi
Almennt - - Lestrar 517

Seifur, nýi dráttarbátur Hafnasamlags Norðurlands.
Seifur, nýi dráttarbátur Hafnasamlags Norðurlands.

Um helgina kom nýr dráttarbátur Hafnarsamlags Norðurlands til heimahafnar á Akureyri.

Bátnum var formlega gefið nafn á sunnudaginn og fékk hann nafnið Seifur.

Báturinn hefur verið í smíðum síðastliðið  ár í skipasmíðastöðinni Armon á norðurhluta Spánar.

Seifur hefur verið inni á samgönguáætlun en smíði hans er styrkt um tæp 60% af hafnabótasjóði. 

Á heimasíðu Vegagerðarinnar segir að Seifur sé með 42 tonna togkraft og því fjórfalt öflugri en sá sem fyrir er. Hann er 22 metra langur og 9 metra breiður. Báturinn er búinn azimuth skrúfubúnaði og verður öflugasti dráttarbátur landsins. Hann er Hann er með tveimur Cummins vélum 1193 kW. Með Azimuth skrúfum en þær er hægt að láta snúast í hring og eykur stjórnhæfni bátsins verulega.  Sprautu til slökkva eld og 25 tonnmetra þilfarskrana.

Með því að festa kaup á svo öflugum dráttarbát er svarað kalli breyttra tíma, skipin stækka og núverandi dráttarbátarn hafa ekki verið nógur öflugir fyrir Hafnasamlagið. Með tilkomu nýja bátsins eykst öryggið til muna og þjónustugildið eykst gríðarlega. 

Einnig opnast möguleikar á að þjónusta aðrar hafnir á Norðurlandi eins og t.d. Húsavíkurhöfn en mikil þörf er á þjónustu dráttarbáts þar eftir að stóriðjan á Bakka opnaði.  

Kaupverðið á bátnum er um 490 milljónir króna er það á pari við kostnaðaráætlun. (vegagerdin.is)

Hafnir innan Hafnasamlags Norðurlands eru Akureyrarhöfn og hafnirnar á Grenivík, Hjalteyri, Svalbarðseyri og í Hrísey og Grímsey.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744