02. sep
Nýr fræðslufulltrúi NorðurþingsAlmennt - - Lestrar 499
Jón Höskuldsson deildarstjóri í Borgarhólsskóla á Húsavík hefur verið ráðinn nýr fræðslustjóri Norðurþings.
Alls sóttu tólf aðilar um stöðuna og var ráðningin í höndum Capacent.
Á heimasíðu Norðurþings segir að Jón muni taka til starfa eins fljótt og hægt er þar sem fráfarandi fræðslufulltrúi, Erla Sigurðardóttir er farin til annarra starfa. Hún mun þó styðja við bakið á arftaka sínum eins og þurfa þykir á næstu vikum.