Ný vefmyndavél á Húsavík

Ný vefmyndavél er komin í gagnið á Húsavík í stað þeirrar gömlu sem bilaði fyrir nokkrum mánuðum.

Ný vefmyndavél á Húsavík
Almennt - - Lestrar 1309

Ný vefmyndavél er komin í gagnið á Húsavík í stað þeirrar gömlu sem bilaði fyrir nokkrum mánuðum.

Sú nýja er á þaki Garðarsbrautar 5 eins og sú gamla og birtir fjóra sjónása. Sú sem fyrir var snérist aftur á móti í hringi. 

Á heimasíðu Norðurþings segir að það hafi verið ákveðin þrautarganga að koma upp nýrri vefmyndavél.

Það sem stundum virðist vera auðvelt getur reynst flókið og snúið. 

En sem sagt ný vefmyndavél komin í gagnið og nálgast má aðgang að henni á forsíðu vefs Norðurþings eða hér Vefmyndavélin á Húsavík


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744