Ný og glæsileg Lyfja opnuð á Húsavík

Ný glæsileg Lyfja var opnuð við hátíðlega athöfn að Garðarsbraut 5 (Gamla kaupfélagshúsinu) á Húsavík fimmtudaginn 11. maí.

Ný og glæsileg Lyfja opnuð á Húsavík
Almennt - - Lestrar 625

Starfsfólk Lyfju á Húsavík. Lj. lyfja.is
Starfsfólk Lyfju á Húsavík. Lj. lyfja.is

Ný glæsileg Lyfja var opnuð við hátíðlega athöfn að Garðarsbraut 5 (Gamla kaupfélagshúsinu) á Húsavík fimmtudaginn 11. maí.

Í tilefni opnunar Lyfju afhenti Sigurbjörn Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Lyfju tvo styrki.

Annar styrkurinn fór til verkefnis sem gengur út á að hjálpa efnalitlum fjölskyldum að senda börn sín í sumarbúðir og tók Kristjáni Þór Magnússon bæjarstjóri við styrknum að upphæð 150.000 kr.

Félag eldri borgara var einnig veittur styrkur að upphæð kr. 150.000 og tók Anna S. Mikaelsdóttir, formaður eldri borgara á Húsavík við styrknum fyrir hönd félagsins. (lyfja.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744