Ný heimasíða Mývatnsstofu komin í loftið

Mývatnsstofa (Visit Mývatn) opnaði í dag nýja heimasíðu félagsins en hún var hönnuð og unnin í samstarfi við Stefnu ehf á Akureyri.

Ný heimasíða Mývatnsstofu komin í loftið
Fréttatilkynning - - Lestrar 562

Mývatnsstofa (Visit Mývatn) opnaði í dag nýja heimasíðu félagsins en hún var hönnuð og unnin í samstarfi við Stefnu ehf á Akureyri.

í Tilkynningu segir að heimasíðan www.visitmyvatn.is sé samstarfsverkefni þjónustufyrirtækja í sveitinni sem vilja vekja athygli á sér á sameiginlegum vettvangi.

Visit Mývatn er orðið vel þekkt vörumerki á innlendum og erlendum markaði og saman ætla fyrirtækin í sveitinni að gera Mývatn að ennþá sterkara aðdráttarafli með það að markmiði að fá fólk til að staldra lengur við, frekar en að fá fleira fólk á svæðið sem stoppar stutt.

Heimsíðan heldur líka út bloggi þar sem viðeigandi fréttir og tilkynningar verða birtar, ásamt endurbirtingum á bloggum frá erlendum ferðamönnum sem hafa heimsótt sveitina. Í síðasta lagi þjónar heimasíðan þeim tilgangi að auglýsa alla viðburði sveitarinnar.

Þá er einnig hægt að fylgjast með Visit Mývatn á samfélagsmiðlunum:


www.facebook.com/visitmyvatn
www.instagram.com/visitmyvatn
www.twitter.com/visitmyvatn


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744