Norðlenska semur við Fosshótel

Í vikunni skrifaði Norðlenska undir tveggja ára samning við Fosshótel um leigu á húsnæði fyrir starfsfólk Norðlenska sem kemur til vinnu í

Norðlenska semur við Fosshótel
Almennt - - Lestrar 473

Jona Árný og Jóna Jonsdóttir. Lj. nordlenska.is
Jona Árný og Jóna Jonsdóttir. Lj. nordlenska.is

Í vikunni skrifaði Norðlenska undir tveggja ára samning við Fosshótel um leigu á húsnæði fyrir starfsfólk Norðlenska sem kemur til vinnu í sauðfjársláturtíð á Húsavík.

Á heimasíðu fyrirtækisins segir Jóna Jónsdottir starfsmanna-stjóri Norðlenska að það sé mjög mikilvægt að hafa góða aðstöðu fyrir starfsfólk þeirra sem þarf að búa tímabundið á Húsavík og hefur fyrirtækið átt í mjög góðu samstarfi við Fosshótel um þetta verkefni til margra ára.
 
Eftir að starfsemi Icelandic Byproducts, dótturfyrirtækis Norðlenska hófst hefur aðkomnu starfsfólki fjölgað verulega og síðasta haust var ákveðið að sá starfsmannahópur sem tilheyrir IB yrði til húsa í Vísis-húsinu svokallaða sem Norðlenska keypti á árinu 2014. Það eru eigendur gistiheimilisins Sigtúns sem sjá um þá gistiaðstöðu og reka gistiheimili þar utan sauðfjársláturtíðar.
 
Á meðfylgjandi mynd sem fengin er af heimasíðu Norðlenska eru þær Jóna Árný Sigurðardóttir hótelstjóri og Jona Jónsdóttir starfsmannastjóri Norðlenska við undirritunina.
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744